Eva María

in the great US and A

26.01.2009 18:00:59 / evamm

Nýtt ár komið fyrir löngu síðan!

Ég hreinlega trúi þessu ekki, nýja árið er komið, það er eins og tíminn hafi ekkert betra að gera en að fljúga áfram á fleigiferð. Ég er búin að eiga heima í Bandaríkjunum í  tæpt hálft ár, svo héðan frá er allt á niðurleið. Það er svo margt sem ég þarf að segja ykkur síðan síðast að ég veit varla hvar ég á að byrja. Mér er farið að líða mjög vel hérna í North East, ég er hætt að vera “ný” fyrir öllum! Þó svo að Dalvíkin draumabláa verði alltaf heimili mitt þá er North East alveg úrvals kostur fyrir annað sætið.

 Hátíðirnar hérna voru alveg æðislegar, það eru allir í fjölskyldunni minni svo mikil jólabörn þannig að það gerði jólin miklu skemmtilegri og það hélt huga og hjarta upteknu frá því að sakna allra heima. Við vorum í skólanum alveg fram á síðustu stundu, ég trúði því bara ekki að ég þyrfti að halda uppá Þorláksmessuna í skólanum, en Bandaríkjamenn halda ekki skötuveisluna hátíðlega. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég saknaði kæstu skötulyktarinnar, þó svo ég borði ekki skötu. Við opnuðum svo ekki pakkana fyrr en morguninn 25, það var skemmtilegt að prófa eitthvað öðruvísi, mamma og þau hringdu í mig þegar þau voru búin að opna alla pakka og borða góða jólamatinn, það var ótrúlega gott að heyra röddina þeirra allra! En við Tiff vöknuðum kl 8 um morguninn og hlupum inn í herbergi foreldranna og vöktum þau. Ryan og Jen komu svo yfir í kringum 9 leitið og við byrjuðum að opna pakka. Allur dagurinn virtist sem langt pakka opnunar maraþon, þegar við vorum búin að opna pakkana á milli okkar fjölsyldunnar komu the Wagner´s, við borðuðum jóla brunch og opnuðum fleiri pakka. Eftir það fórum við fjölskyldan yfir til “ömmu” þar sem við borðuðum aðeins meira og opnuðum fleiri pakka! Ég var ótrúlega ánægð með allar gjafirnar mínar í ár, uppáhalds gjöfin mín var þó án efa Íslands skórnir sem ég fékk frá mömmu og Júlla :D
       
Nýja árið var ekkert eins og ég er vön, við skáluðum ekki einu sinni :!: Við fórum yfir til vinkonu mömmu, hún er með danskan skiptinema í ár svo við vorum bæði jafn hissa yfir því hvað Bandaríkjamenn virðast ekki halda nýja árið hátíðlegt. Það var ekki einu sinni ein einasta sprenging 8| Í jólafríinu fórum við og sáum the Erie Bayhawks og the Erie Oters sem eru körfubolta og hokkí liðin í Erie. Það var ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega hokkíleikurinn af því að leikmennirnir voru alltaf að slást og aðdáendurnir voru allir á yfirsnúnigni.
 Skólinn gengur bara mjög vel, við erum loksins að byrja á nýrri önn í næstu viku. Lokaprófin mín voru eiginlega bara fáranleg, kennararnir gáfu okkur allar spurningarnar á prófinu og svo lærðum við bara það, einn kennari las allt prófið fyrir okkur daginn fyrir prófið. Ég er mjög spennt fyrir nýju önninni minni. Fögin eru mun meira spennandi og eitthvað sem ég hef áhuga á. Ég er að fara að taka Indipendent Living þar sem ég læri að lifa sjálf! Við förum í gengum hvernig á að borga reikninga, gera skattayfirlit og fara í starfsviðtal. Svo er ég að fara í sálfræði og latnesk læknisfræðiheiti sem ég er ótrúlega spennt fyrir. Ég á eftir að fylla einn tíma í stundartöflunni minni, námsráðgjafinn minn veit ekkert hvað hann á að gera við mig en tíminn mun leiða það í ljós.

            Ég fór og hitti alla skiptinemana á mínu svæði í Pittsburg, það sem við gistum eina nótt og vorum eiginlega bara að hanga saman og tala um reynslur okkar hingað til. Mér fannst mjög gaman, ég fæ ekki oft að hitta þessa krakka af því að ég bý 2 tímum frá flestum þeirra. Ég ákvað að fara með stelpu frá Svíþjóð og strák frá Ítalíu til Punxatwany til að sjá einhverja Grounhog sýningu sem mér var boðið á á vegum AFS. Ég fæ að missa 2 daga úr skólanum og búa hjá annarri fjölskyldu í nokkra daga svo það verður vonadi mjög skemmtilegt.
    
Ég er búin að eyða mjög miklum tíma úti í snjónum, við höfum mjög mikið af honum í ár svo um að gera að nýta hann. Við erum búin að spila amerískan fótbolta sem er sko meira en að segja það. Í fyrradag fór ég svo á snjósleða, ég var á tveggja manna sleða með Randall, Ryan ætlaði fyrst að keyra mér en þegar ég datt 2 á fyrstu 10 metrunum kallaði ég á Randall. Ég datt 2 með honum líka en sleðinn var alveg stopp í bæði skiptin svo það var eiginlega bara mér að kenna. En ég er með svo mikla strengi eftir þetta allt saman og marin á báðum lærum :!:

 En ég ætla að vera duglegri að blogga, er ennþá að koma mér í gírinn eftir hátíðirnar, en það eru bara rétt rúmir 5 mánuðir í heimkomu mína, brottfaradagurinn minn er 30 júní, hlakka til að sjá ykkur öll


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 23:48:59 / evamm

Lífið er viðkvæmt fyrirbæri

Heil og sæl allir saman og gleðilegan Desembermánuð:!:
Ég vona að þið hafið það sem allra best á Íslandinu góða. Ég er farin að hugsa meira og meira heim og er farin að sakna ykkar hættulega mikið. En það fylgir hátíðunum held ég bara, AFS stjórnendur segja að þetta sé erfiðasti tíminn fyrir skiptinema og ég held bara sveimér þá að þeir hafi rétt fyrir sig. Mig langar líka heim að knúsa fjölskylduna mína og hjálpa þeim í gengum erfiða tíma vegna fráfalls Rúnars. En ég veit að hann er uppi hjá Guði að skemmta sér eins og mamma orðar það, við eigum samt öll eftir að sakna hans ótrúlega mikið.

Hérna megin eru karlar og örfáar konur á öllum aldri farin að róa sig niður, því jújú veiðitímabilið er búið 8| Ég er bara hálf fegin, ég veit allavega að litlir og stórir bambar úti í skógi sofa betur á nóttinni vitandi að þessar byssuglöðu manneskjur eru hættar að áreita þá. Pabbi veiddi eitt dádýr, því miður var það ekki mikið stærra en heimilishundurinn, sem er sæmilega stór labrador:lol:  En við fáum víst mjög gott kjöt af þessum litlu dýrum svo það er ágætt. Ég var í vikunni að snyrta og skera til dádýrakjöt fyrir Jerky. En það er kjöt sem er skorið í þunnar sneiðar, marinerað og svo þurkað. Bragðast eins og fínasta sælgæti.

Ég er komin í smá lestrargír, veit ekki afhverju ég byrjaði ekki á því miklu fyrr að venja mig á því að lesa á hverjum degi, það er líka besta svefnlyf sem ég veit um eftir langan dag í skólanum. Ég er búin að lesa 2 bækur utan skóla og er núna að hella mér í Stephen King, The Stand sem er 1000og eitthvað blaðsíður.
Í skólanum er ég hins vegar að lesa Macbeth eftir Shakespeare sem er með þeim drepleiðinlegustu bókum sem ég hef lesið, en það verður gaman að geta montað sig af því að maður hafi komist yfir Shakespeare bók yfir ævina. Annars gengur skólinn mjög vel, uppáhalds kennarinn minn var valinn kennari ársins8) Hann kennir mér efnahagsfræði, svo sú vittneskja ætti að geta nýst mér eitthvað í heiminum sem við lifum í dag.
Við skiptum ekki um annir fyrr en í janúar og ég fer ekki í jólafrí fyrr en 23 des. Ég spyr bara fyrirgefðu en má þetta dómari?

Talandi um jólin þá er ég búin að kaupa allar jólagjafir og skrifa öll jólakort, það er bara einn hausverkur eftir og það er að senda allt draslið í allar áttir. Ég ætlar að leyfa mömmu og Aroni að dreifa kortum og pökkum vítt og dreift ;)
Ég er samt búin að fá 2 jólagjafir, sem voru svona fyrir jólin jólagjafir. Ég fékk stígvél, svona hlý og góð, loðin innan í og vantsheld eftir að ég spreyjaði þau frá AFS. Já AFS gaf mér jólagjöf, ég var alveg jafn hissa og þið kæru lesendur, en ég var mjög þakklát. Skó búnaðurinn minn var ekki viðeigandi fyrir vetrarmánuðina. Svo gáfu Renee og Randy mér snjósleðaúlpu, sem lítur út eins og venjuleg úlpa, en er ofurhlý og ótrúlega kósí.

Körfuboltinn er kominn í gang í skólum útum allt land. Skólinn minn er að standa sig furðu vel og er búinn að vinna alla 3 leikina sína. mér heyrist samt á öllu að sú velgengi eigi eftir að snúast við því komandi skólar eru þekktir körtuboltaskólar og minn skóli er ekki alveg í þeim flokki. En auðvitað óska ég þeim áframhaldandi sigrum á tímabilinu.

Ég fór á glímukeppni í skólanum mínum, jesús góður hvað þetta er kjánaleg íþrótt, mér fannst miklu skemmtilegra að horfa á hliðarlínurnar og skoða sætu strákana þegar þeir voru að skipta um bol haha, en ég lærði nokkur brögð svo ef ég lendi í salgsmálum þá er ég ávalt viðbúin. Ekki það að ég sé að búast við neinu svoleiðis.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í  bili, mamma er að hengja upp restina af jólaskrautinu og er með tónlist í botni og dansandi, hún segir að ef það er ekki hægt að dansa við tónlist þá ætti maður bara að sleppa því að hlusta á hana :!:

Já og ég við óska litlu vinum mínum Aroni og Köru Rún innilega til hamingju með daginn þann 3 des, hvernig líður ykkur að vera komin á borð fullorðnafólksins ;)

Hafiði eins gott og er mögulegt og ég bið ykkur öll vel að lifa.



» 10 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 02:49:27 / evamm

SNOWDAY

Ég ákvað að setja inn svosem eins og eitt blogg fyrir ykkur sem eru svo dugleg að fylgjast með mér, enda kominn tími til. Það er alltaf nóg að gera hjá mér, en núna undanfarið er farið að hægjast aðeins hjá mér. Ég tek því bara fagnandi því ég þarf núna von bráðar að fara að skella mér í jóla gírinn og allt sem honum fylgir, kortagerð og annað skemmtilegt. Ég er mjög spennt fyrir jólum utanhafs, þau eru ekkert rosalega öðruvísi held ég, nema náttúrulega að við opnum pakkana morgunin 25. Það á samt eftir að verða ótrúlega sárt að hugsa heim til ykkar allra :!:
Ég hef ekki verið mikið í skólanum undanfarið, núna var Thanksgiving Break og vikan á undan var skemmtilega skóla-lítil vegna veðurs. Það er alveg merkilegt hvað við Íslendingar erum duglegir í að drífa okkur út í hvaða veður sem er, en um leið og það kemur smá snjór hérna þá virðist allt lamast og allt stoppar. Ég fékk að upplifa minn fyrsta snjódag, sem þýðir einfaldlega að það er enginn skóli vegna veðurs. Sá dagur lenti svo skemmtilega á föstudegi svo það var gleðigleði á mínum bæ. Veðrið var alveg fullkomið, fyrir utan ógrini af snjó, svo þegar það var búið að moka göturnar komu nokkrir krakkar úr skólanum og við lékum okkur úti í snjónum og komum svo inn og fengum heitt súkkulaði.

 Það sem hinsvegar hefur átt hug og hjörtu Bandaríkjamanna núna er Þakkargjörðarhátíðin. Ég fékk 6 daga frí úr skólanum, fer aftur næsta triðjudag svo ég hef nýtt tímann í að slappa af og borða góðan mat. Þakkargjörðin var á fimmtudaginn síðasta, við fjölskyldan fórum yfir til the Wagners, sem er bróðir mömmu og fjölskyldan hans. Ég hef aldrei á ævi minni borðað jafn mikinn mat, við sögðum borðbæn og allir sögðu hvað þeir voru þakklátir fyrir. Eftir að hafa komið niður kílóum af kalkún og pumpkin pie horfðum við á fótboltaleikinn og spiluðum svo leiki. Um 4 leitið fórum við svo yfir til “ömmu” og borðuðum aðeins meira. Frændi minn frá PennState kom heim yfir hátíðirnar svo Cowser fjölskyldan kenndi mér að spila “fjölskylduspilið” sem ég mun kenna ykkur öllum þegar ég kem heim aftur, ég var ótrúlega léleg og tapaði en það var samt mjög gaman.
Á hverju ári eftir Thanksgiving kemur Black Friday. Hljómar kannski ekkert alltof vel en er í raun besti verslunardagur allra Bandaríkjamanna. Ég var eiginlega orðin mjög hrædd að fara að versla þennan dag eftir allar sögurnar sem ég heyrði en gat þó ekki slept því að fara. Þessi dagur virkar þannig að daginn fyrir fá allir sent auglýsingabæklinga í hús þar sem er sagt frá hreint ótrúlegum verðum eins og 200 kr nýjum DVD og sjónvörp á hálfvirði svo maður geti planað hvar sé best að stoppa fyrst. Búðirnar opna svo kl 5 um morguninn, fólk bíður í röðum fyrir utan búðirnar og hleypur svo inn og stekkur á það sem þeir vilja. Ég hef aldrei á ævinni séð jafn mikla frekju og yfirgang hjá fólki, það gerði allt sem það gat til þess að ná í bestu tilboðin. Ég gerði mér góðan dag og keypti mér fullt af jólagjöfum fyrir svo lítinn pening :D
Ég fór með systkinum mínu og mökum þeirra að versla, við byrjuðum á Walmart, svo mollið og svo Kohls og CircutCity. Við vorum komin heim kl 9 og mér leið eins og það væri komið hádegi. Við horfðum á myndir og sváfum allan daginn, en þegar kvöldið kom þá kíktu frændsystkinin í heimsókn og við héldum smá teiti. Það var ótrúlega gaman, við syntum, spiluðum, dönsuðum og ég og Trevor urðum beerpong meistarar :!:
Dagurinn í dag var ekki sá heilsubesti, ekki bara vegna eftirverkja gærkvöldsins heldur líka vegna þess að ég hef eiginlega ekkert sofið síðustu nætur.

 Það sem eftir er af fríinu mínu ætla ég að fara á snjósleða með Randall, hann er búinn að vera að reyna að ná mér á sleða síðan hann kom heim og ég ætla að gefa undan, ástæðan fyrir tregðunni í mér er vegna þess að hann er stórhættulegur á þessum sleðum en hann lofar að fara mjög varlega. Kannski ég fái mér bara minn eigin sleða, bara upp á öruggið.

 Ég held að ég hafi tjáð mig nóg í bili, ég er reglulega að bæta inn nokkrum og nokkrum myndum sem þið getið skoðað. Annars þá bið ég ykkur bara öll vel að lifa. Sakna ykkar allra ó svo mikið.


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 20:52:50 / evamm

Heaven Can Wait

Kominn tími á blogg, held það bara !

Ég ætla að byrja á því að óska mömmu númer 1, 2 og 3 til hamingju með afmælið sem var 10 nóv :D Mamma hvernig líður þér að vera næstum því hálfnuð í 90 árin haha

En það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast. Það er orðið ósköp kalt hjá mér, samt enginn snjór, það kom smá en hann fór eiginlega um leið. Samt ekki nógu fljótt því um daginn í skólanum þegar ég var að borða morgunmat réðst strákur á mig með snjóbolta. Ég náði samt að hefna mín af því að ég setti hellings ssnjó inná bakið á honum. Þannig að núna ganga af því að the Icelandic girl knows how to fight back when it comes to snow.

Síðasti fótboltaleikurinn okkar var á fimmtudaginn 30 október, tímabilið er búið og núna er körfuboltinn að byrja. Ég þarf að fara að setja mig í One Tree Hill sporin :D

 

Skólinn gengur mjög vel, ég hlakka samt mjög mikið til að fá Þakkargjörðar fríið mitt.

 

Halloween kom og fór eins og vindurinn, ég skemmti mér konunglega að klæða mig upp og labba á milli húsa og fá helling af nammi fyrir aðeins að segja Trick or Treat :!: Það er eins og við íslensku börning séum að ganga í gegnum þrældóm, gangandi á milli fyrirtækja, syngjandi okkur hás fyrir harðfisk. En nóg um það, Halloween er annars mjög stór hátíð hér í Bandaríkjunum, mamma mín tekur hana mjög alvarlega allavega haha. En að sumu leyti eru þetta eins og jólin heima, fyrir utan allt sem maður hræðist. Húsin eru skreytt með ljósum, draugum, nornum og auðvitað graskerum. Ég persónulega skar 2 stykki grasker, það er hellings vinna en samt mjög gaman. Listrænu hæfileikar mínir sem eru gjörsamlega ekki til blómstruðu alveg.

Við fórum 6 saman og heimtuðum nammi, sjóræningjar, hokkíspilari, hlébarði, the Green Giant og fleiri í vel valið úthverfi og enduðum uppi með nammi sem endist mér alveg fram í nýja árið, fyrir ykkur sem þekkið mig vel þá er það mikið sagt því ef það er eitthvað sem mér finnst gott þá er það nammi ;)

 

Á laugardaginn fóru Tiff, mamma og ég í mollið. Ég var eiginlega ekki í neinu stuði að versla jólagjafir, sá bara föt sem mig langaði í svo ég fór og heilsaði uppá hvolpana í gæludýrabúðinni. Við fórum svo í Macy’s og ég fann mér nuddstól sem mig langaði alls ekki að standa uppúr.

Ég endaði svo á því að gista hjá Ryan og Jen. Fór með Jen í vinnuna um morgunin þar sem hún litaði rótina mína og særði slitnu endana mína. Stofan sem hún vinnur á er æði, er svipað og Hár og Heilsa, með nuddi og hand og fót snyrtingu og auðvitað hárgreiðslustofa. Þannig að ég er orðin fallega ljóshærð sem gleður örugglega litlu hjörtun þeirra Jenný og Alexöndru. Um kvöldið fórum við svo heim til Reanna þar sem við spiluðum Wii, og já Kara það eru til góðir örvhentir tennisspilarar. Ég er allavega fáránlega góð ;)

 

Síðustu helgina kom Randall heim þannig að the gang sameinaðist og við skelltum okkur á skauta. Randall þóttist aldrei hafa skautað áður en var tókst samt að skauta um eins og atvinnumaður. Systir hans var hins vegar ekki jafn frábær, ég var hennar stoð og stytta og hélt í höndina hennar allan tíman, og verð að viðurkenna að ég er enn svolítið aum. Við enduðum skautaferðina í Wendy´s og skelltum í okkur smá ruslfæði.

Ég er hins vegar mjög spennt fyrir þessari helgi, í kvöld er Haust leiksýning skólans og þau eru að sýna leikrit sem heitir Heaven Can Wait, það er um einhvern boxara sem deyr en þarf svo að komast aftur niður á jörðina. Á víst að vera svaka fyndið. En á morgun þá ætlum við að hafa stelpukvöld heima hjá Reanna og horfa á Sex and the City og PS I Love You og borða súkkulaði húðuð jarðarber.

 

Ég ætla að láta þetta nægja í bili, hafiði það gott öllsömul þarna hinu megin

já og klukkurnar voru færðar hjá mér svo ég er 5 klukkutímum frá Íslandi !


» 13 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 21:18:53 / evamm

No my name is not Fes, it's Eva

Góðann og blessaðann daginn. Ég sit heima að horfa á endursýnda OC þætti á the Soap network, eða mitt annað heimili :D Ég kom heim úr skólanum fyrir klukkutíma, tókst með snilldarhætti að tala mig útúr Umhverfisvísindaprófi sem ég átti að taka eftir skóla, en þar sem að einkunnin mín er svo góð þá þarf ég þess ekki. Kennarinn minn er pínulítil kona með fæðingarblett sem hylur að minnsta kosti 40% af andlitinu hennar og hún blótar allan daginn, í dag sagði hún motherfocker allavegana 4 sinnum.8|
Það byrjaði loks að snjóa hérna hinu megin við hafið, ég heyrði að þið hafið alveg nóg af honum heima, munurinn er að heima fáum við fyrst snjó í fjöllum en hérna fáum við snjó í tréin ! Halloween er á leiðinni og ég býð með eftirvæntingu, við systkinin ætlum að fara Trick or Treating. Ég þarf bara að fara í Party City að sækja búninginn minn.8)

 Síðustu 2 helgar voru í rólegri kantinum. Ég hélt uppá afmælishelgina hennar Jennýar með því að gista heima hjá Ryan og eyddi laugardeginum með honum og hjálpaði að “þjálfa” körfuboltastelpurnar hans, verð að segja að ég sökka feitt í þeirri íþrótt. Þetta var eiginlega bara vandræðalegt, einhverjar 12 ára stelpur að rústa mér, og þær eru ekkert svo góðar ! Annars stökk upp smá drama, öfundssýki og misskilningur allt á einu bretti en það var allt lagað með rosalegum fjölskyldufundi.

 Vikan kom og fór eins og allar aðrar, uppáhaldskennarinn minn Mr. Hart gerði mig mjög hamingjusama. Hann kennir mér Economics, sem er ekki skemmtilegasta fag í heiminum en samt mjög nytsamlegt fyrir komandi tíma. En hann ákvað að láta bekkinn minn vera hluta af sérstöku verkefni sem hann er að vinna að sem heitir Medal of Honor. Það gengur út á það að við erum að læra um the Medal of Honor, heyra stríðsögur og kynna okkur hvað maður þarf að gera til þess að fá the Medal. En hann valdi mig og 3 aðra til þess að hitta nokkra hermenn og tala við þá í nóvember utan skóla. Ég er ótrúlega spennt, að fá að kynnast lifandi hetjum.

 Síðasta helgi var rosalega góð. Föstudagurinn var eins og flestir aðrir, það var away fótboltaleikur. Við spiluðum gegn Sharon, sem er 90% svartur skóli svo þið getið rétt ímyndað ykkur að þeir gjörsamlega völtuðu yfir mig.
Randall frændi minn kom heim um helgina, hann er svo mikið yndi. Hann fór með mig í verslunarmiðstöðina og keypti handa mér bol og við fórum líka í gæludýrabúðina og fengum að leika við Huskey hvolp sem mig langaði svo mikið í. Á laugardagskvöldið fórum við 8 út að borða, Tiff og Bobby, Ryan og Jen, Reanna og Aaron og Randall og ég. Við fórum á Hibachi’s sem er japanskur veitingastaður þar sem kokkurinn eldar fyrir framan þig, það var ótrúlega gaman og vá hvað kokkurinn var flinkur. Eftir matinn fórum við í keilu, allir í fjölskyldunni minni eru keilumeistarar eða eitthvað, en ég skemmti mér samt mjög vel. Eftir keiluna fórum við í party heim til Aarons. Ég prófaði hina margumtöluðu Wii tölvu og ég rokkaði. Vá hvað ég er góð í tennis, eruði að grínast og ég er alveg að finna fyrir eftirverkjunum í dag því að glósuvöðvarnir mínir voru ekki ánægðir í ensku í morgun. Við spiluðum beerpong, sem er fáránlega góður drykkjuleikur, merkilegt hvað maður verður alltaf lélegri að hitta ofaní glösin þegar líður á kvöldið ;) Ég fékk líka nýtt gælunafn sem mér finnst ekkert alltof flott, Fes=Foreign Exchange Student :!: Við svo enduðum á því að gista heima hjá Aaron, sökum drykkju og skorti á bílstjórum. Sunnudagurinn var klassískur leti dagur, við hópuðumst öll heim til Renee og Randy þar sem við borðuðum góðan mat og horfðum á NASCAR og fótboltaleik, en ég talaði við litla tvíbbann minn hana Jenný. Vá hvað það var gott að sjá hana og heyra röddina hennar.

 Ég held að ég láti þetta nægja í bili, ég ætla að renna yfir ástarsögur úr grískri goðafræði
Ekki drukna í snjónum heima


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 19:45:18 / evamm

Homecoming, Capitol og Amish folk

Komidi oll heil og sael :!: Tid verdid ad afsaka bloggleysid i mer, eg hef einfaldlega bara ekki haft tima. Eg er enn og aftur ad bida eftir ad timinn lidi hradar i the Media Center i skolanum.

Tad virdist vera allra skodum ad tar sem eg er skiptinemi ta viti eg bara nakvaemlega ekkert og hafi ekki gert neitt nema ad anda undanfarin 18 ar. Tannig ad allir eru ad tileinka sinum tima i ad syna mer ymislegt og reyna ad kenna mer ameriska sidi, sem mer finnst mjog skemmtilegt, jafnvel to ad eg hafi orugglega gert flesta hluti, eins og ad borda a McDonald's :lol:

Sidustu vikur hafa samt verid mjog skemmtilegar, Homecoming gekk otrulega vel, a fostudagskvoldinu var mer asamt herranum minum keyrt inna svaedid i golfbil, Mr Shields var bilstjorinn minn sem var mjog videigandi vegna tess ad hann er kennarinn sem tekst alltaf ad finna mig og leidbeina mer i retta att tegar eg villist :!: Tegar eg labbadi inna vollinn ta var kynningin min lesin og jesus godur eg hljomadi eins og half fronsk half russnensk tegar tau sogdu nafnid mitt 8| En oll fjolskyldan min kom og tau stodu oll upp og oskrudu tegar eg steig inna vollinn :haha: Eg var ekki kosin homecoming queen en eg var samt a topp 10 listanum 8)

A laugardeginum kom Ryan brodir og sotti mig og vid eyddum ollum deginum saman, hann baud mer ut ad borda og lofadi mer tvi ad taka mig ut a ameriskt romantiskt stefnumot haha. Vid forum svo heim og Jen konan hans gerdi harid a mer hraedilega vaemid og skemmtilegt. Tad komu nokkrir krakkar heim fyrir ballid og vid bordudum heima og tokum myndir sem eg mun ad ollum lykindum syna ykkur i nanustu framtid.
Ballid var otrulega skemmtilegt, plotusnudurinn var samt aberandi lelegur, audvitad var Country numer 1, 2 og 3 a vinsaeldarlistanum 8|

Sidasta helgi var mjog skemmtileg lika, vid fengum 4 daga helgi. Enginn skoli a fostudag og manudag svo mamma, pabbi, Tiffanie og eg forum i ferdalag. Vid byrjudum a tvi ad fara til Penn State Collage sem tekur rumlega 100.000 nemendur :!::!: En Trevor sem er skildur mer gegnum pabba er ad fara ad utskrifast tadan eftir 1 ar. Skolinn er ekkert sma flottur, hann er i timum sem tekur allt ad 700 nemendur i einu. Fotboltaleikvangurinn teirra tekur 110.000 manns i saeti.
Eftir heimsoknina tangad ta keyrdum vid afram og skodudum the Pennsylvania Capitol, en tad er byggingin tar sem allir radherrar Pennsylvaniu vinna i og tetta er ein storkostlegasta bygging sem eg hef sed.
Vid komum einnig vid i Hershey sukkuladiverksmidjunni, tid sem tekkid mig vitid vel ad eg og nammi forum vel saman svo eg get alveg fullyrt ad eg skemmti mer mjog vel i kringum allt tetta sukkuladi.
Tegar kvoldid nalgadist ta keyrdum vid til Gettysburg tar sem eg laerdi um Gettysburg bardagann og sa vigstodvarnar og allt tad, sem var mjog ahugavert. Tegar allt var ordid dimmt forum vid i Ghost Walk, eg sver ad leidsogumadurinn minn var draugur.
Daginn eftir endudum vid ad fara til Lancaster sem er staersta land sem Amish eiga i Bandarikjunum. Tad var mjog skemmtilegt ad hitta tau oll, allir i eins fotum og ferdast um a litlu hestvognunum sinum. Eg spurdi ta ad ollu sem mer datt i hug, teir fara bara i skola tangad til i 8. bekk og tau trua a ad stunda kynlif innan fjolskyldunnar og tau nota ekki neitt rafmagn :!:
Eg vildi ad eg gaeti synt ykkur myndir af teim en teir verda mjog reidir ef madur tekur upp myndavel fyrir framan ta.

Dagurinn i dag er buinn ad vera svo langur ad lida ad eg held ad hann verdi aldrei buinn. Reyndar er Ryan ad koma bradum med mat til min, svo baud akvedinn bruneygdur strakur mer ad koma a fotboltaleikinn hans og kannski borda eftir a, svo eg hlakka til tess ;)

Sakna ykkar allra hedan ur goda vedrinu ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 20:27:33 / evamm

Seton Hill Collage og Horseracing

Hallo hallo, hvad segid tid gott i dag ? Eg held ad eg geti fullyrt ad eg sakni ykkar allra  :| En a bjortu hlidina ta hef eg tad otrulega gott herna i Pennsylvaniu. Dagurinn i dag er reyndar buinn ad vera langur og erfidur. Eg tok 5 prof og gerdi 2 ritgerdir, allt vegna tess ad eg fekk sykingu i halsinn a manudaginn og missti 2 daga ur skolanum. Svo ad eg er nuna a syklalyfjum og er strax farid ad lyda betur to svo a halsinn a mer se enn mjog bolginn :!:

A manudaginn ta var samkoma i salnum i skolanum tar sem allur skolinn kom saman tvi tad var verid ad kynna Homecomming Court, sem eru 5 strakar og 5 stelpur sem voru valin og svo verda valin Homecomming Queen og King. Lika a tessari samkomu voru skiptinemar skolans kynntir. Vid turftum ad fylla ut eitthvad blad sem eg gerdi eiginlega i halfu grini ;) Eg fyllti ut nafn og heimilisfang og auk tess framtidarplon og hvad mer finnst gaman ad gera i fristundum. Ja eg held ad eg geti bara sagt af nanast allur skolinn sat og hlo ad mer medan eg veifadi eins og litill kjani framan i alla :^)
Eftir samkomuna for eg eiginlega beint til hjukkunar af tvi eg var hraedd um ad fara ad slefa af tvi ad halsinn a mer virtist tvofaldur :!: Hjukkan hringdi i mommu og hun eyddi skemmtilegum 3 klukkutimum i ad reyna ad redda mer laekni. Enginn vildi sja mig vegna tryggingarinnar minnar gegnum AFS, samt eigum vid skiptinemar ad vera 100% tryggd. Meirad segja laeknarnir sem AFS visadi mommu a vildu ekki taka vid mer. Hun bardist to afram og nadi tima halftima i burtu tar sem eg by. Eg skemmti mer to agaetlega, hjukkurnar sogdu mer sludur um krakkana i skolanum, taer vita allt jesus 8|

En helgin min var svooooooo skemmtileg. Vid familian forum asamt fjolskyldu brodur mins og heimsottum son teirra Randall i Seton Hill Collage. Skolinn hans er katolskur og eldgamall, en tad er nylega buid ad laga hann svo hann er otrulega flottur. Randall gaf okkur utsynisferd um skolann og heimavistina. Vid forum a fotboltaleik um kvoldid og upplifdum mestu rigningu i heimi og eg var med svo gott utsyni a blauta, sveitta, svarta og hvita fotboltaleikmenn. Mer leiddist allavega ekki :lol: og seinna for eg med Randall, Reanna og Tiff i party. Vid stoppudum ekkert mjog lengi en tad var mjog gaman 8) Daginn eftir for eg i messu, tad var mjog skemmtilegt eiginlega, presturinn taladi um vaendiskonur, skattheimtara og afturendann a Gudi.

A sunnudaginn var sidasti dagurinn fyrir Horseracing, eda vedhlaupahesta svo vid kiktum vid tar. Tad var mjog gaman ad fa ad sja tetta allt saman, eg samt vorkenni hestunum svo mikid. Teir eru svo uppdopadir ad augum teirra eru blodraud og allir vodvar stifir. Daginn adur en ad eg for ta dou 2 hestar a brautinni 8| En va hvad teir hlaupa hratt og va hvad knaparnir eru litlir. Saman gaetu teir stofnad minnsta fullvaxna folk i heimi.

En Homecomming er eftir 2 daga, en fotboltaleikurinn er a morgun tar sem eg verd kynnt fyrir ollum baenum minum og tad er spad rigningu 8|

En eg aetla ad halda afram ad aefa prinsessu veifid mitt fyrir morgundaginn ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 19:25:02 / evamm

The awsome lawnmoer

Hallo hallo. Eg aetla ad byrja a tvi ad bidjast afsokunar a engum islenskum stofum, eg er i skolanum i the Media Center ad bida eftir Ryan, korfuboltalidid hans er ad fara ad keppa og eg er andlegur studningur :d
    Annars gengur allt mjog vel hja mer, eg var ad fa ut ur Economics profi og fekk 98 prosent vuhuu :!: Eg er lika loksins farin ad rata um skolann, en tad er einum og adeins einum manni ad takka, Mr Reid. Honum tekst alltaf ad finna mig tegar eg er vilt og hjalpar mer a leidarenda.
    Helgin min var svo miklu betri en minar bjortustu vonir. Eg var i AFS-camp med 43 odrum skiptinemum fra the Western Pennsylvania Area. Tad var eiginlega bara otrulega gaman svei mer ta. Eg hitti Tailendingana mina, Prim, Ireen og Gun. Tau voru oll hin hressustu, eg eyddi miklum hluta helgarinnar i ad skjota Gun nidur. Eg lika kynnist folki fra otrulegustu londum, eins og Zizo fra Egyptalandi 8) Vid vorum yfir helgi, eg turfti ad deila bafherbergi med 20 stelpum, tad var spes. En vid eyddum mest ollum timanum i ad hanga saman og kynnast hvort odru. Tid truid tvi orugglega ekki en eg meirad segja taladi norsku vid norsku og saensku krakkana 8| En eg var mest med Viktor fra Brasiliu, Simone og Michelle fra Italiu og Zizo fra Egyptalandi. Allir voru lika mjog hrifnir af nyja simanum minum, eda alveg tangad til ad Ola fra Noregi kom med betri sima en minn :| haha. En skiptinemar eru skemmtilegt folk og vid aetlum ad reyna ad hittast adur en ad arid er lidid. Eg aetla ad fara heim til Renee a morgun og skelli inn einhverjum myndum fra ollu saman.
     A sunnudeginum komu fjolskyldurnar og vid vorum med talent show fyrir alla. Tid sem tekkid mig vel vitid vel ad eg hef engann serstakan haefileika, nema kannski ad tala haha. Svo eg akvad ad nyta tann haefileika og var kynnir asamt Viktor fra Brasiliu :haha::haha: Mamma tok allt saman a video og vid horfdum a tetta i gaer, eg var bara nokkud god ;)
    I gaerkvoldi leiddist mer af tvi ad Tiffanie var a dansaefingu svo pabbi spurdi mig hvort mig langadi ad sla gardinn, sem er RISA-stor. Tid getid imyndad ykkur ad eg var ekkert hoppandi af aesingi, en tegar hann sagdi ad tetta vaeri slatturvel sem madur keyrir var eg bara mjog spennt. Eg fae ekkert ad keyra herna svo eg skemmti mer konunglega i solsetrinu ad runta um gardinn med ipodinn i eyrunum :!:

Homecomming er eftir taepar 2 vikur :p eg veit ekki alveg i hverju eg a ad vera, Reanna ad fullt af kjolum og einhver onnur stelpa sem eg hef aldrei hitt en svo kom eg med brudarmeyjarkjolinn minn svo eg stend a krossgotum hvad tad vardar.
Homecomming er a laugardegi en tad er fotboltaleikur a fostudeginum og audvitad verd eg formlega kynnt tar, tau munu an efa slatra eftirnafninu minu og segja svo fra my future goals. Troy Murdock aetlar ad vera svo vingjarnlegur ad fylgja mer inn a vollinn :haha:

Naesta helgi verdur mjog skemmtileg held eg, min fjolskylda og Randy og Renee aetlum ad fara ad heimsaekja Randall i haskolann hans. Tar aetlum vid ad fara a fotboltaleik og brasa eitthvad skemmtilegt. Eg hlakka eiginlega mest til ad hitta hann og vini hans, teir eru saetir 8)

En eg aetla ad lata tetta naegja i bili. Ast og meiri ast til ykkar allra

Unnur til hamingju med afmaelid a morgun ;)
  



» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 21:24:59 / evamm

Ja eg lifi

Komiði öll heil og sæl.
Eg er loksins sest vid tölvuna og ætla ad skella inn einu bloggi aður en að folk fer að senda hotunarbref I posti ;).

        Eg er buin ad vera herna i North East Pensylvania i rett rumlega manuð og hef það bara otrulega gott. Nuna er eg stödd heima hja nyju frænku minni og frænda (Randy and Renee) Renee vinnur heima a miðvikudögum svo eg kem oftast hingað eftir skola þa daga og við brösum eitthvað skemmtilegt
        Nyja fjölskyldan min er algjort yndi, mamma min er hiphop mamma, hun elskar hiphop og dansar við öll tækifaeri. Pabbi minn hlustar bara a Country tonlist eins og flest allir her, en hann er byggingaverktaki og vinnur mikið uti. Svo a eg broðir sem heitir Ryan, hann er 25 ara gamall og var að gifta sig i Mars, konan hans heitir Jen og hun er hargreiðslukona og ætlar ad sja um harið mitt fritt meðan eg er her :d:d:d þau eru baeði algjört æði, Ryan er eiginlega uppahaldið mitt, eiginlega bara vegna þess ad eg hef aldrei att broður, en eg er mjog oft heima hja honum að brasa ymislegt, hann a lika innisundlaug svo við erum mikið þar. Systir min Tiffanie er ari yngri en eg og er klappstyra og æfir dans. Hun er med þeim lidðgustu manneskjum sem eg þekki, jesus, en við erum ordnar tokkalega goðar vinkonur. Hun a lika kærasta sem heitir Bobby, hann er lika besti vinur Ryans en hann er alveg storkostlega hallærislegur að það er bara gaman af honum.

        Skolinn minn gengur bara furðu vel, hingað til bara að fa A og B og ætla að halda þvi bara afram. En High School er annars bara mjog skemmtilegur, hann er miklu strangari en eg bjost við. Ef þu vilt fara a klosettið eða fara i skapinn þinn þa verður þu að hafa serstakan passa og skrifa þig ur ur timanum og svo skrifa þig aftur inn þegar þu ert buin. Eg er I 4 fögum og allir dagarnir minir eru eins, fyrst fer eg i svokallad Homeroom hja Mr. Rocky, en þar situr maður i ca 20 min og getur lært eða bara spjallað. þegar það er buið ta fer eg i ensku þar sem er að læra Greek Mythology sem er geggjað skemmtilegt. Að tvi loku fer eg I Economics hja feitum manni með eina augabrun sem er undir nafninu Mr Hart og er minn uppahalds kennari. Eftir þad fer eg i Umhverfis Visindi, þar sem eg er að laera um umhverfid og furðu mikid um börn kennarans, þvi hun gerir ekkert nema að segja okkur sögur alla daga. Siðasti timi dagsins er American History með Freshmen, sem eru 14 ara krakkar og vita jafnt og ekkert i sinn haus greyin.

        Eg ferdast med skolarutu til og fra skola, þad tekur skemmtilegann klukkutima a morgnanna svo eg þarf að vakna kl 6 a morgnanna þvi rutan kemur kl 6:20 en tekur bara 15 min heim.

 

 

Amerikan er að mörgu leyti allt önnur en eg hafði imyndað mer, en hun er svo stor að hun er hvergi eins. Eg er stödd I Country-voggu landsins held eg bara svei mer þa. Her hlusta allir a Country og ekkert nema það, ju einstaka unglingur hlustar a fm957 tonlist en her er Country aðalnumerið. iPodinn minn er að fyllast af Shania Twain og felogum :!::!::!: Broðir minn og konan hans fara meirað segja að dansa linudans nokkrum sinnum I manuði haha.

 

 

Eg er buin að brasa ymislegt siðan eg kom hingað yfir hafið. Ferðalagið byrjaði allt a þvi ad eg lenti I borg borganna, New York. þar gisti eg eina nott a the Holiday Inn og flaug svo til Pittsburg með flest öllum Tailendingum heimsins, eg sver, og við vorum þar yfir helgi fyrir AFS komunamskeið. Tailendingar eru hin bestu skinn, þau vita bara ekki alveg hvað personulegt svaedi er, þau koma bara alveg ofani mann og taka mynd af þer og snerta harið þitt. En eg eignadist þo godan vin þaðan, hann er reyndar fyrir þvi ohappi að heita Gun, greyid.

 

Eftir AFS namskeid þa for eg með Sally og Larry heim, vegna þess að fjolskyldan minn var að djamma I Detroit og að horfa a NASCAR keppni. NASCAR er bilað vinsælt i minni familiu, minn ökumaður er numer 83 og heitir Brian Vickers.

        Sally og Larry hystu mig i 5 daga. þad var tyskur strakur i heimskon hja þeim, Simon heitir hann en hann var skiptinemi fyrir 4 arum a sama stað og við vorum mikið saman.

 

 

Siðan eg kom heim til min er buið ad vera brjalað að gera hja mer, samt bara skemmtilegir hlutir haha. Eg for til Niagra Falls, I bruðkaup, bonfire party, 8 lautarferðir og i vatnagarð/skemmtigarð með systkinum minum og Simon.

 

En eg held að þetta naegi I bili, eg mun blogga fljotlega aftur og setja inn einhverjar myndir, annars er hægt að sja eitthvað a myspace-inu minu.

 

Hafiði það gott öll sömul hinu megin við hafið, eg sakna ykkar allra   

 

 

God Bless America hahah


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 19:05:07 / evamm

Phony people come to pray

Já hvað haldiði, ég held að ég sé að verða djúp. Eða þá er Alma að smita mig af metal gaurs kröftunum sínum :|
En já svo ég byrji þar sem ég endaði þá voru snúðarnir ömurlegir, það sem pabbi sagði þegar hann kom heim var...jæja Eva mín varstu að baka. Þarft þú ekkert að vera að læra eða eitthvað ? En ég gefst ekki upp, ég mun halda áfram minni baráttu í eldhúsinu, eða allavega þegar ég hef bara ekkert betra að gera !!

En helgin var skítsæmileg bara, við stelpurnar sameinuðumst í Reiðholti og elduðum, eða reyndar bara Elín og Björk. Svo gengum við frá öllu, eða reyndar bara Jenný þar á ferð, svo ég gerði ekkert nema borða og láta færa mér bjór :$
en Eurovision sökkar feitan, já ég er bara hætt að horfa á þessa austurblokk :!:
Stolt helgarinnar hjá mér að að keyra öxnadalsheiðina, eða nánar, alla leiðina frá Varmahlíð til Dalvíkur, samt meira stolt að mömmu að haldast á lífi, en þetta gekk bara ótrúlega vel. Kannski fyrir utan þetta eina atvik þar sem mamma sagði með reyndar mjög rólegum róm, Eva mín viltu hitta á helvítis brúnna 8|

Í dag get ég ásamt mentskælingum fagnað 10 dögum í próf...jeiiij. Af hverju koma þau ekki bara á morgun, nenni ekki að bíða eftir þeim.

En þetta blogg ætla ég að tileinka henni Unni punni systur minni.
Unnur er mjög gefin ung kona, en öll eigum við okkar ljóshærðu móment. Já hún á alveg nokkur þannig. Dæmi um eitt þannig var þegar Unnur lifði lengi vel í þeirri trú að Arnold Schwarzznegger væri svartu, því jú hann heitir Svartu Niggari !!! :haha:

Unnur sem meikaði það

p.s. Hvernig á síðan mín að líta út, ég er bara í uppnámi veit ekkert hvernig ég á að ráðstafa þessu !!

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 19:09:55 / evamm

Vertu ólík öðrum, segðu já !!

Velkomin krakkar mínir. Þessa pick-up línu er að finna á síðunni hennar Gullýar ásmt öðrum haha

Ég er við það að deyja núna, ekki úr veikindum, eða sár á hné, heldur vegna þess að ég bara hef ekki hugmynd um hvað ég á að borða !! Minn persónulegi kokkur er farinn að taka á móti Gullý í óvissuferð og þá er ég bara skilin eftir 8| Ég held að ég baki mér bara kanelsnúða. Kannski ekki hinn fullkomni kvöldmatur en það er það eina sem mér dettur í hug.

Annars þá verð ég að segja ykkur geðveikt skemmtilega sögu, sum ykkar hafa reyndar heyrt hana en mér finnst hún bara fyndnust í heimi :lol:
Sko einu sinni var Alma í vinnunni (sem þjónustumær á Bautanum) og það var einhver að leika svona Borat eftirhermu og sagði Very Nice eða eitthvað. Stendur þá ekki Alma upp og segir geðveikt hátt I LIKE SEX :!::lol: já og auðvitað allir að stara á hana og hlæja, og það fyrsta sem henni dettur í hug er að begja sig niður og skríða inní eldhús haha.
Eins og Kristín mundi orða það svo skemmtilega, þú ert krypplingur Alma :haha:

 

Ágústa Eva hveeeer ? Alma sæta :D

 En annars þá er þessu bloggi mínu lokið, ætli ég drífi mig ekki bara í baksturinn  


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:41:23 / evamm

Grænt, slímugt, bólgið og kjöt

Held það nú bara, er þetta ekki bara besta lýsingin á hnénu á mér núna. Eða þá lýsingin hennar Ölmu...Eva ojj þetta er eins og græn kjötkássa 8|
Annars þá er ég bara að steindrepast. Ég frétti það frá honum Bjarna að ég hafi dottið þegar ég var að heilsa honum, persónulega man ég bara ekkert eftir því en jæja :$ Við pabbi vorum samt að redda mér áðan, sótthreinsuðum á okkur hendurnar, suðum og kældum vatn, settum sótthreinsandi grisju, svo venjulega og svo eitthvað til þess að líma þetta niður.

Mamma og pabbi eru samt hvorug að gefa mér einhverja samúð, ooog bara vegna þess að ég var að drekka þegar fallið átti sér stað. Ég er bara seinheppin !!!

Annars þá ætla ég að vera fáorð um helgina, allavega föstudagskvöldið. Það var ágætt til að byrja með svo breyttist ég í eitthvað haturskrímsli og gerði ýmsa góða skandala. Já mánudagurinn var samt óvenju góður ;)

Síðasta vika var samt mjög fín bara, láum eins og klessur í sólbaði á mánudaginn og sumir fóru 2svar í Brynju. Persónulega fór ég bara einu sinni :haha: En ég fer ekkert þangað á næstunni, fyrsta lagi þá er ég svona milljón ár að labba og svo er veðraparadísin búin að stökkbreytast í eitthvað sem við íslendingar erum því miður mun vanari á þessum árstíma. Æjji fokk it, verð þá bara inni fram á sumar :!:

 

Segja svo að ég sé alki ??!!!!

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 23:21:37 / evamm

Með menningarlegu ívafi

Er ekki annars ívaf skrifað svona ? æjji skipta máli maður.

Já við menntskælingar fjölmennuðum í 4 rútur suður í menningarferð. Þar var hægt að fara í bláa lónið, Leg, menningarrölt og fleira. Ég, Jenný og Alexandra ákváðum að taka ekki þátt í neinu af þessu og eyða frekar tíma og peningum í að versla. Ég meina það er ekki oft sem maður fer suður og þegar það gerist þá verður að nýta tímann :!:
Þessi ferð var samt mjög skemmtileg, en eins og Bjarni orðaði það þá er alltaf skemmtilegast að fara frá Reykjavík. Maður verður bara svo þreyttur á að vera þar til lengri tíma finnst mér.

En eftirtalið var afrekað í borg óttans.

  • Lagt af stað suður 
  • Fórum til Hannesar og sofnuðum !
  • Vaknað kl 9 og mættar í Smáralind kl 11
  • Verslað
  • Hitt ömmu Germany, Lilju æðibita og Einar Aron
  • Knúsað fallegu hvolpana hennar Sæunnar
  • Náð í pizzu á línuskautum
  • Varla staðið í lappirnar sökum drykkju (Gísli :evil: )
  • Þunn !
  • Borðað besta beikonhamborgara í heimi
  • Keyrt heim

1. maí haldinn mjög hátíðlegur hjá mér í dag, fór í 1. maí reiðina (á hestbaki to be noted) í geðveiku veðri :haha: Mamma kom ekki með sökum meiðsla !!
Í kvöld var ég annars að hoppa með Alexöndru, Elínu, Kristjáni og Aroni, sem var æði rétt á meðan ég var ekki að deyja úr hræðslu 8|

En spurning um að fara að pakka niður einhverju drasli, held það bara


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 19:14:17 / evamm

Tími á blogg

Hvaða hvaða. Djöfull er ég slöpp. Ekki að standast væntingar bloggsamfélagsins.

Annars er ég bara hress, mánudagurinn í síðustu viku sökkaði big time. Bara var ömurlegur að öllu leyti. En eftir smá knús og kossa frá vel völdum einstaklingum þá komst ég bara að því að ég hef ekkert að gera með það að vera í fýlu. Svo ég tók upp brosið mitt bara aftur og hef ekki tekið það niður síðan.

Annars þá var Söngkeppini framhaldskólanna. VMA rústaði þessu. Eins og einhver sagði þá var nú hálf leiðinlegt að Eyþóri að gefa engum sjenns 8)

Menningarferð MA er om weekenden. Það verður geðveikt held ég bara. Spurjiði Ölmu hvort henni hlakki ekki til :lol: En við skytturnar 3 ætlum að gista hjá honum Hannesi frænda Alexöndru sem er frábært, sturta og svefnfriður :!: Já svo ætlar Hafliði að keyra okkur milli staða :D Ég ætla líka að sjá framan í hann Einar Aron, góðan vin og félaga og að sjálfsögðu hana Sæunni mína og loðnu börnin.

*Ef lífið væri jafn einfalt og ostur*


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 18:59:15 / evamm

Roðlaust og Beinlaust

Heilir og Sælir !
takk fyrir síðast þið sem voruð í sjallanum...hahah snilldar kvöld :D

Annars þá er ég búin að dorma undanfarna daga í páskafríi, eins og landið allt. Ég hélt páskana mjög heilaga, gerði eiginlega ekkert nema ég virkilega þurfti þess :!: Neinei. Ég fór á hestbak alveg nokkrum sinnum !! og mætti í vinnuna á réttum tíma, sem er árangur. Mér reyndar tókst að skera mig á fyrstu 15 mínútunum, sem var bara drullu vont. En það var nú bara ekkert miðavið STUNGUSÁRIÐ mitt. Já haldiði ekki að hún Gullý systir mín hafi ekki bara þrumað hárbeittum hnífsoddi í beinið á fokk puttanum. Það var meiraðsegja svo vont að ég þurfti að hætta að vinna því mér varð svo óglatt. Afsökunin hennar Gullýar var að hún þurfti bara að ná sambandi við mig 8|

Ég er alveg sátt með að vera byrjuð aftur í skólanum, þó svo það séu alveg búnkinn af prófum framundan. Það er ekki hollt að vera of lengi í fríi. En söngvakeppni framhaldsskólana er á laugardaginn. Ég ætla að blæða fkn 2400 kr í þennan atburð, og vonandi verður þetta þess virði. Sæunn ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni. Verst að hún getur ekki tekið börnin sín með sér :|

 

Bara af því við erum sætar !!!

 

Palla-stokker !

ps. fagrar myndir frá páskapalla eru á b.c.is/hresst,  b.c.is/skellibjollur90 og b.c.is/brakandi_


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 263 dögum
Þangað til ég kem heim